Heklaðar tuskur – í eldhúsið og baðherbergið.
Einfalt hekl og fljótlegt
Smekklegar tuskur og handklæði
Fyrir byrjendur og lengra komna
Í bókinni eru 11 uppskriftir að tuskum, sumar einfaldar en aðrar flóknari, og hver uppskrift er merkt erfiðleikastigi.
Tuskuhekl er bæði einfalt og fljótlegt. Það er góð leið til að losa sig við garnafganga og fallegar tuskur og handklæði gefa heimilinu alveg nýtt yfirbragð.
Fremst í bókinni er kennsla í nokkrum algengum heklaðferðum.