Skilmálar

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Kast ehf til heimilis að Hafnargötu 25, 230 Reykjanesbæ

Kt 520911 1380 Vsk-númer 108990 sími 421 5121.

Banki 0142-26-100385

Almennt

Kast ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Greiðsla og afhendingarmáti.

kast.is bíður viðskiptavinum sínum að greiða fyrir vörur með greiðslukortum og debetkortum í vefverslun eða millifæra á bankareikning verslunarinnar. Vefgreiðslur eru í gegnum greiðslugátt hjá Borgun og uppfylla ströngustu öryggiskröfur.

Afgreiðsla pantana

Pantanir sem gerðar eru í vefverslun kast.is eru að jafnaði póstlagðar daginn eftir að gengið hefur verið frá greiðslu þeirra.

Afhending vöru

Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Kast ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Kast ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Við leggjum okkur fram um að sýna allar vörurnar í réttum litum. Það er hins vegar útilokað að ábyrgjast alveg rétt litbrigði eins og þau birtast á þínum tölvuskjá vegna þess að vefmyndir búa við ákveðnar tæknilegar takmarkanir.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Kast ehf með spurningar.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru í íslenskum krónum og með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Lög og varnarþing Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjanes.